Miðvikudaginn 10. mars kl. 07.23

Loðnuslútt um helgina á Lundanum

Loðnuslútt um helgina á Lundanum Jón Ingi og hans fólk tekur vel á móti gestum um helgina.
Um helgina mun hljómsveitin Ímynd spila á skemmtistaðnum Lundanum, bæði föstudag og laugardag.  Hér er á ferðinni hreint frábær fimm manna sveit með söngvarann Alexander Aron í broddi fylkingar.  Frítt er inn fram að miðnætti báða dagana og eru Eyjamenn hvattir að hafa það í huga.  Svo skemmtilega vill til að Pétur Jensen, bassaleikari sveitarinnar á afmæli á laugardag.  Í stuttri tilkynningu frá sveitinni kemur fram að hann vill bara pening í afmælisgjöf.
 
 

Miðaverð eftir miðnætti er 1500 kr.  Allir á loðnuslútt á Lundann.
 
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi