Miðvikudaginn 10. mars kl. 11.00

Margrét sjaldan betri

Margrét sjaldan betri
 „Margrét Lára er kominn í sitt besta form á ný og ég hef satt að segja sjaldan séð hana betri en hún er einmitt um þessar mundir,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska knattspyrnuliðsins Kristianstad, í samtali við Morgunblaðið.

Landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur glímt við þrálát meiðsli í læri undanfarin tvö ár og þau hafa haldið verulega aftur af henni á þeim tíma. Hún náði aldrei að æfa af fullum krafti síðasta tímabilið sitt með Val, sumarið 2008, og meiðslin héldu aftur af henni á fyrsta árinu í atvinnumennskunni í Svíþjóð, sem og í úrslitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi.
 
www.mbl.is greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi