Miðvikudaginn 10. mars kl. 18.14
Framkvæmdir í Herjólfsdal:

Varanlegt svið reist fyrir stóra pallinn

Varanlegt svið reist fyrir stóra pallinn Væntanlega verður stóra sviðið öðruvísi á næstu Þjóðhátíð
Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði fram breytingu á deiliskipulagi í Herjólfsdal á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs. Breyt­ingin er að stóra sviðið verði stækkað og þar verði salernis­aðstaða. Samþykkt var að auglýsa tillöguna.  Gunnlaugur Grettisson, formaður ráðsins, sagði hugmynd þjóðhátíðar­nefndar vera að koma upp vísi að varanlegu sviði.
 

„Í gild andi aðalskipulagi er leyfi fyrir bygg­ingu en byggingarreit urinn er stækkaður samkvæmt núgildandi skipulagi. Við lögðum áherslu á að tekið verði tillit til umhverfissjónarmiða og að byggingin falli vel að umhverfi Herjólfsdals,“ sagði Gunnlaugur.
 
Tryggvi Sæmundsson sagði þjóðhátíðarnefnd ætla í samstarfi við bæinn að steypa upp kjallara sem verður undir stóra sviðinu í Herjólfsdal. „Húsið er þrír metrar á hæð og um 280 fermetrar. Við notum gamla sviðið og hífum upp á kjallarann næstu þrjú til fjögur ár en planið er að þarna verði varanlegt svið til framtíðar en við þurfum að fá arkitekt eða hönnuð til að koma að þeirri vinnu.
 
Tryggvi sagði reiknað með að í kjallaranum verði geymslur og aðstaða fyrir starfsfólk og þó svo að ekki sé gert ráð fyrir almenningssalerni þar, samkvæmt deiliskipulagi, þá finnst honum það koma vel til álita. „Við reiknum með að kjallarinn verði kominn upp fyrir Þjóðhátíð og gamla sviðið sett þar ofan á þannig að þetta verði komið í gagnið í sumar.“
 
Þegar Tryggvi er spurður nánar út í sviðið og hvernig það komi til með að líta út í framtíðinni sagði hann enga endanlega ákvörðun liggja fyrir. „Það er ekki endilega að það standi uppi allt árið. Niðurstaða liggur ekki fyrir, um ræða þarf að fara fram og allar hugmyndir verða kynntar fyrir bæjarbúum.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi