Guðfinnur Þorgeirsson, skipstjóri, vill ekki gera mikið úr óhappi sem hann varð fyrir þegar hann hrasaði á leið um borð í bát sinn Ingu VE og féll í sjóinn þar sem hún lá við Bæjarbryggjuna. Ótrúleg tilviljun réði því að Bjarki Ómarsson, starfsmaður í Miðstöðinni, var þar nærri og heyrði í Guðfinni og sótti þrjá fíleflda karlmenn til að aðstoða við að ná honum úr sjónum. Guðfinni var ekki meint af volkinu en hann stundar enn sjóinn þó hann sé kominn yfir áttrætt og gefur ekkert eftir.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 11. mars kl. 07.23
Guðfinnur 83 ára - Kenndi sér ekki meins eftir að hafa dottið í höfnina:
Skalf ekki eftir volkið og stálsleginn eftir heita sturtu
-Tilviljun að það heyrðist til hans þar sem hann svamlaði í sjónum
„Þetta fór ágætlega. Þeir hífðu mig upp þarna,“ sagði Guðfinnur og vildi sem minnst úr þessu gera en þetta gerðist á miðvikudaginn í síðustu viku. „Nei, ég var ekki lengi í sjónum. Ég hafði ekki að hífa mig upp á bryggjuna því það var enginn stigi þarna. Ég kallaði og Bjarki heyrði í mér,“ sagði Guðfinnur og tók fram að þeir sem hjálpuðu við að hífa hann upp ættu hrós skilið.
„Nei, mér var ekki kalt, ég var í þykkri og góðri lopapeysu. En þegar maður er í svona góðri peysu verður maður svo þungur. Það var samt engin hætta á ferðum, ekki þannig,“ sagði Guðfinnur og er þakklátur Bjarka fyrir að gá að honum.
Heyrði kallað eftir hjálp
Bjarki var leið niður í Fiskiðju með efni þegar hann heyrði kallað eftir hjálp. „Ég hljóp upp í Miðstöð og sótti menn til að aðstoða við að koma manninum upp úr sjónum og það gekk mjög vel,“ sagði Bjarki og aðspurður sagði hann það hafa verið hreina tilviljun að hann var þarna á þessum tímapunkti og hann sá engan á ferli þarna á bryggj unni.“
Ágúst Þórarinsson, starfsmaður í Miðstöðinn, sagði Bjarka hafa komið og óskað eftir aðstoð við að koma manni úr sjónum. „Við fórum með honum; ég, Þór Engla og Kristján Ingvarsson. „Það gekk vel að ná honum upp úr sjónum, Guðfinnur er fílhraustur og skalf ekki einu sinni. Hann er sterkur og alveg ótrúlegur karl,“ sagði Ágúst sem keyrði Guðfinni heim eftir að hann komst á land aftur.
„Mér finnst þetta nú eiginlega ekki vera fréttaefni. Það þótti enginn viðburður að detta í sjóinn þegar ég var krakki. Það skeði á hverjum degi, “ sagði Guðfinnur og var þá spurður hvort ekki hefði verið meiri mannskapur á bryggj unum í gamla daga. „Jú, það var öðruvísi og yfirleitt mikil hreyfing á fólki. Sem betur fer heyrði strákurinn í mér og hann er hetjan í þessu öllu saman. Mér varð ekkert meint af þessu og fór í heita sturtu þegar ég kom heim og þá var það gott.“
Guðfinnur hefur stundað sjóinn frá því hann var fimmtán ára gamall utan eitt sumar þegar hann vann í landi. „Sjómennskan hefur verið mín atvinna,“ sagði Guðfinn ur sem bráðum verður 84 ára. „Ég fer á sjóinn þegar það er gott veður. Það er alltaf jafn gaman og breytist aldrei. Gott að vera út af fyrir sig og tala við fýlinn. Ég stunda þetta áfram ef þeir leyfa, það er alltaf verið að breyta og skera niður. Maður veit aldrei hvernig þetta verður.“
Vikublaðið Fréttir greindi frá.




.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



