Mánudaginn 17. maí kl. 12.45
Myndagallerí fylgir fréttinni

Upplifun á Tríkot og Lúðró

- séra Ólafur Jóhann var kryddið sem gerði kvöldið ógleymanlegt

Upplifun á Tríkot og Lúðró
Upplifun á Tríkot og LúðróUpplifun á Tríkot og LúðróUpplifun á Tríkot og LúðróUpplifun á Tríkot og LúðróUpplifun á Tríkot og Lúðró
Á laugardaginn voru þriðju og jafnframt síðustu tónleikar Tríkot og Lúðró. Tónleikarnir hafa verið haldnir árlega síðan 2008 og bara orðið betri á milli ára. Alls voru 75 tónlistarmenn sem tóku þátt í tónleikunum, sem voru þeir bestu af þeim þremur. Það sem gerði kvöldið ógleymanlegt var auðvitað frábær flutningur þar sem ekki var slegin feilnóta, en ekki síður skilaði séra Ólafur Jóhann Borgþórsson sínu hlutverki sem kynnir kvöldsins á frábæran hátt þannig að tónleikagestir lágu í háturskrampa á milli laga.

Það er ekki lítið afrek að koma saman 75 tónlistarmönnum og láta þá hljóma eins og vel æfð hljómsveit. Ósvaldur Freyr Guðjónsson hélt sem fyrr um tónsprotann og á stóran þátt í því hversu vel samæfðar sveitirnar eru orðnar. Á tónleikunum voru tekin lög sem hafa hljómað áður hjá Tríkot og Lúðró en flutningurinn um helgina var svo þéttur að þau gengu í endurnýjun lífdaga. Nýju lögin féllu líka vel í kramið, ekki síst Eyjalögin tvö sem Guðrún Gunnarsdóttir söng, ásamt Þórarni Ólasyni í öðru laginu. Í heild voru tónleikarnir frábærir, ekki við öðru að búast þegar rúmlega 500 manns láta sig hafa það að fara út í öskufjúkið og sitja svo inni í óloftræstri Höllinni í meira en tvær klukkustundir. Það eru meðmæli í lagi.
 
Í raun er erfitt að taka nokkur lög út, öll voru þau svo góð en þó langar mig að minnast á tvö lög. Annars vegar er það lagið Hocus Pocus sem hollenska sveitin Focus gerði frægt á sínum tíma. Það er lag sem allir kannast við en enginn mundi eftir fyrr en Tríkot og Lúðró tóku það upp á sína arma. Flutningurinn á laugardaginn á þessu óvenjulega rokklagi var slíkur að helst langaði mig til að stökkva úr sætinu og dilla mér með. Og það átti væntanlega við um fleiri.
 
Þá var flutningur á laginu Think sem Aretha Franklin gerði frægt á sínum tíma, hreint magnaður. Jórunn Jónasdóttir, söngkona er hreinlega fædd til þess að flytja lagið, syngur það af mikilli innlifun þannig að ekki er hægt annað en að hrífast með. Flutningur á heimsmælikvarða hvorki meira né minna.
 
En eins og áður sagði er í raun erfitt að taka eitt atriði fram yfir annað. Hins vegar má taka sérstaklega fram að kynnirinn, séra Ólafur Jóhann Borgþórsson stimplaði sig hressilega inn sem einn skemmtilegasti veislustjóri landsins, einlægur en fyndinn og best af öllu var þegar hann fór yfir texta jólalaga. Það atriði er eitthvað sem aðeins er hægt að upplifa en ekki segja frá.
 
Umfram allt, takk fyrir mig. Þetta voru síðustu tónleikarnir en vonandi verður ekki langt að líða þar til Tríkot og Lúðró koma saman aftur.
  
Júlíus G. Ingason
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn