Þriðjudaginn 25. maí kl. 11.13

Tónlistin er mín leið til tjáningar

- Óðinn Yngvason gefur út þungarokksdisk - Semur, útsetur og stjórnar sjálfur

Tónlistin er mín leið til tjáningar
Fimm laga þungarokksdiskur eftir Óðin Yngvason er kominn út en hann semur, útsetur og leikur á nær öll hljóðfæri sjálfur. Óðinn hefur verið í nokkrum hljómsveitum en þetta er fyrsti diskurinn sem hann gefur út sjálfur. Þungarokk er hægt að flokka sem jaðartónlist sem á sér kannski fáa en dygga aðdáendur.

Óðinn er að mestu sjálfmenntaður í tónlist, lærði aðeins á gítar í Tón­list­arskólanum hjá Valla en hefur að mestu pikkað þetta upp sjálfur á bassa og trommur. „Ég keypti mér trommur fyrir tæpum sjö árum síðan, settist bak við þær og byrjaði að tromma. Það hjálpaði mikið þegar ég gekk til liðs við Stillbirth eftir að ég hafði verið í burtu um tíma en sú hljómsveit hét áður Post Mortem. Við vorum mjög ánægðir, æfðum mikið og það var voða gaman hjá okkur. Bastard er svo annað band sem ég var í og gaf hún nýlega út sínu fyrstu breiðskífu sem ber nafnið Dementia and filth og þar á ég stóran hlut í lög­unum.“
 
Lítill en samhentur hópur í þungarokki
Lögin á nýja diskinum heita Despair, The Crusher, Stench Of Vengeance, Endless Agony og End This Pain. Þrjú af lögunum eru spiluð en í tveimur laganna eru text­ar eftir Mik Annetts sem sér jafnframt um söng. „Mik er ótrúlega fær textahöfundur og tónlistarmaður. Kjartan og Kristinn koma inn sem session-hljóðfæraleikarar til að fylla inn í og skreyta en ég spila á gítar, bassa og trommur,“ sagði Óðinn sem er spurður hvort mark­aðurinn á Íslandi sé ekki lítill fyrir hart þunga­rokk.
„Það er erfitt markaðslega, Ísland er lítil þjóð og lítill en samhentur hópur í þungarokki. Þegar ný hljómsveit kemur fram þá er mikill stuðningur og hvatning frá þeim sem hafa áhuga á þessari tónlist. Á Norðurlöndunum hafa komið fram hljómsveitir sem eru að gera góða hluti en Ísland er fjársjóðskista sem á eftir að skoða.“
 
Lítið útgáfufyrirtæki í Bandaríkj­unum ætlar að kynna og selja disk­inn þar ytra og aðalmaðurinn þar hefur tekið ástfóstri við skandinav­ískt þungarokk og sérhæfir sig á þessum markaði. „Mordbrann er svo til nýlega stofnað Indie label sem staðsett er í Kaliforníu og sérhæfir sig í skandinavískri þungarokktónlist. En þetta „label“ gerði útgáfu­samning við dauðarokkhljómsveit að nafni Beneath sem er frá Reykjavík.
 
Charlie hjá Mordbrann ætlar að setja kynningar um mig og nýja diskinn á heimasíðu útgáfunnar og fá gagnrýni og umfjöllun um disk­inn í tónlistarblöðum sem fjalla um þungarokk. Hann er við það að gefa út safndisk á eigin vegum og ætlar að gefa út annan disk seinna í sumar og þar fæ ég að vera með lag. Fyrir mig er mikill heiður og viðurkenn­ing að njóta þessar athygli frá þess­ari útgáfu þó enginn samningur sé í boði a.m.k. um sinn.“
 
Fékk spilun í útvarpi í Þýskalandi
Óðinn var áður með lag á Netinu sem fékk óvænta athygli. „Það var svo eins konar lítið „underground” eða jaðartímarit sem setti sig í samband við mig árið 2006 og spurði hvort ég hefði gefið eitthvað út. Nei, var svarið en ég fór út í það að útbúa þriggja laga disk sem bar nafnið Look Deep Into Your Soul,“ sagði Óðinn og gagnrýnin sem diskurinn fékk er mjög góð. Þar segir meðal annars að enginn söngur sé í lög­unum sem sé kostur þar sem hann myndi trufla þungamiðju tónlist­arinnar. „Tónlistin er allt og hlust­andinn fer á flakk í huganum,“ segir gagnrýnandinn og mælir með tón­listar­manninum.
 
„Til gaman má geta þess að ég hef áður fengið spilun í bandarísku netútvarpi, Vmunderground og hefur tónlistin mín verið send út á allt að þrett­án stöðum í einu. Þetta er afar vinsæll þáttur og stjórnað af Vic Mendoza. Hann tók við mig viðtal á sínum tíma sem snerist um Still­birth, mitt gamla band, sem og íslenska þungarokktónlist. Í dag bíður hann spenntur eftir að fá eintök af Despair í hendurnar en hann mun gefa hlustanda eða hlustendum eintök.
 
Mögulegt viðtal er jafnvel á dagskránni. Síðast liðið haust setti maður að nafni Thorsten Linnebank sig í samband við mig og bað um leyfi til að spila lag frá mér í þætti sínum sem heitir Meshuggener. Hann er á einhverri þýskri stöð og í hverjum þætti er eitthvert eitt land tekið fyrir og þungarokktónlistin sem kemur frá viðkomandi landi. Ég fékk að fljóta með ásamt þekktari íslenskum böndum eins og Sólstöf­um, Beneath, Severed Crotch o.fl. Ég ætla að reyna að koma diskinum í spilum á X- inu, þar er sérstakur þungarokksþáttur. Þannig að það er óhætt að segja að ýmislegt hafi gerst sem tengist tónlistinni sem ég er að fást við, hvort sem er mín eigin eða með hljómsveitum.“
 
Chuck Schuldiner í uppá­haldi
Það eru kannski ekki mörg tækifæri til að spila á tónleikum?
„Það eru oft tónleikar í Reykjavík og þessi tónleikasena er mjög aktív. Stillbirth spilaði m.a á Akureyri og á G-festival í Færeyjum og við í Bastard fórum á Eistnaflug á Nes­kaupstað sem er stundum nefnd árshátíð þungarokksins. Þar er rjóminn af þungarokki og rokki á Íslandi. Hátíðin stendur í þrjá daga og vekur athygli út fyrir landsteinana. Ég spilaði þar í hittifyrra og það var meiriháttar gaman.“
 
Þrjú af fimm lögum á diskinum eru spiluð og síðan semur Mik Annetts tvo texta, um hvað fjalla þeir?
„Ég fór fram á það við hann að textarnir fjölluðu um tilfinningar. Annar textinn fjallar um örvæntingu og hinn um reiði og ótta. Textar þungarokkshjómsveita eru mjög misjafnir, sumir eru einskonar fanta­síur jafnvel um limlestingar o. s. frv. Chuck Schuldiner í hljómsveitinni Death var í miklu uppáhaldi hjá mér og textar hans fjölluðu um reynslu og tilfinningar. Tónlistin er mín leið til tjáningar og mér finnst ekki að þurfi endilega að vera söngur.
 
Næstu skref?
„Næsta skref hjá mér verður trú­lega fimm laga diskur sem verður öllu rólegri. Þar verður mikill kraftur, meira gítarplokk og meiri melódía. Ég er reyndar búinn að gera þetta einn og óstuddur þannig lagað séð. Ég ræddi við þá hjá bæjarráði um hvort möguleiki væri að fá styrk út á diskinn svo ég gæi unnið þetta almennilega og klárað. Mér var lofað svari eftir smá tíma, ári síðar er ég enn að bíða eftir svari, þetta er alltaf sama sagan. Ef það tengist tónlist þá er lokað á mann, ef ég hefði haldið á fótbolta og sagst vanta nýja takkaskó þá hefði ég fengið skóna. Ég hefði fengið sokka­par frítt með.“
Óðinn sér sjálfur um að selja disk­inn í Eyjum og kostar hann 700 krónur.
 
Viðtalið er tekið úr vikublaðinu Fréttum.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn