Föstudaginn 28. maí kl. 21.16
Föstudagsgrínið:

Börnin í næstu blokk voru líka útá svölum

Börnin í næstu blokk voru líka útá svölum
Eyjafrettir hafa undanfarið verið helteknar af pólitíkinni enda  kosningar á morgun. En það er kannski ágætt að slá aðeins á létta strengi milli alvöruþrunginna greina frambjóðendanna. Hér er einn góður:
Jón og Gunna bjuggu í mjög lítilli íbúð í Breiðholtinu. Þau komust að því að til að fá næði til að gamna sér um miðjan dag um helgar væri að senda 10 ára soninn út á svalir og biðja hann að segja frá því sem gerðist í hverfinu. Þau töldu að njósna um nágrannana myndi vekja áhuga hjá drengnum og halda honum uppteknum um klukkustund eða svo.

 Jón og Gunna sendu drenginn út á svalir og byrjuðu að gamna sér. Drengurinn byrjaði að segja frá því sem fyrir augun bar. ,,Það er verið að draga bíl burt af bílastæðinu. Það eru gestir hjá íbúunum á móti.” Eftir nokkra stund segir stráksi: ,,Jói er á nýju hljóli og Benni og Birta eru að gera það”.
Jón og Gunna snarhættu og risu upp í rúminu. ,,Hvernig veistu það” spyr pabbinn undrandi.
,,Börnin þeirra standa einnig úti á svölum eins og ég” svaraði guttinn.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn