Hafrannsóknastofnunin leggur til að heimilt verði að veiða 160 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er 10 þúsundum tonna meira en stofnunin lagði til fyrir réttu ári. Stofnunin metur stærð þorskstofnsins nú 850 þúsund tonn.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Föstudaginn 04. júní kl. 16.40
Hafró:
Leggur til 10 þúsund tonnum meira á næsta fiskveiðiári
Ráðgjöf stofnunarinnar fyrir ýsu á næsta fiskveiðiári er 45 þúsund tonn. Það er 12 þúsund tonnum minna en lagt var til í fyrra þegar lagt var til að veidd yrðu 57 þúsund tonn. Þá leggur Hafrannsóknastofnunin til að leyft verði að veiða 40 þúsund tonn af ufsa en tillögur hennar í fyrra voru 35 þúsund tonn.
Sjávarútvegsráðherra hélt sig við tillögur stofnunarinnar í þorski í fyrra og heimilaði 150 þúsund tonna heildarafla á yfirstandandi fiskveiðiári. Hann bætti hins vegar við ýsu- og ufsakvótann frá tillögum stofnunarinnar. Ýsukvótinn á þessu fiskveiðiári er nú 63 þúsund tonn samkvæmt ákvörðun ráðherra og ufsakvótinn 50 þúsund tonn.









