Föstudaginn 04. júní kl. 15.06
Föstudagsgrínið:

Ökuníðingur í vondum málum

Ökuníðingur í vondum málum
Bílstjóri ók á 120 km. hraða eftir þjóðveginum til Selfoss. Það er nokkuð yfir leyfilegum hámarkshraða. Lögreglan varð þessa ökuníðings var, og eltir hann. Ökuníðingurinn sér að lögreglan er á eftir og sér og eykur því hraðann. En lögreglan eykur líka hraðann og nær honum rétt austan Selfoss. Ökuníðingurinn gefst því upp.

Þegar lögreglan kemur að ökuníðingnum er hún ansi hvöss og segir: „Af hverju í veröldinni keyrðirðu svona hratt, þú varst kominn á 180 kílómetra hraða?“

„Jú“, segir ökuníðingurinn,“konan mín hljópst á brott með lögreglu í seinustu viku“

„OG HVAÐ MEÐ ÞAГ, spyr lögregluþjónninn?

„Ég hélt að þú værir að reyna að skila henni“, segir ökuníðingurinn þá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn