Undanfarið hafa mótorhjól og bílar verið að stunda hraðakstur upp Strembugötu. Síðast í gærkvöldi var lögreglan að elta mótorhjól á miklum hraða upp Strembugötuna en málið er þeir stinga lögregluna af. Þetta er búið að vera mjög slæmt undanfarin kvöld. Ungir ökumenn á hraðskreiðum bílum stunda sömu iðju, jafnvel samhliða í kappakstri á ofsahraða. Nú er Þæjumótið um helgina og sjálfsagt er matur í Höllinni, þannig að stöðugur straumur krakka er upp Strembugötuna.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 09. júní kl. 14.01
Hulda Sigurðardóttir í Vatnsdal skrifar:
Hraðakstur og Pæjumót
Það er geysilega gaman að sjá allt þetta líf í kringum Pæjumótið. Fallegir og góðir krakkar sem veifa til manns er þeir ganga framhjá.
En ég hef miklar áhyggjur vegna hraðaksturs og skora á að settar verði upp einhverskonar hraðahindranir meðan mótið stendur. Þetta leggst illa í mig vegna þess að ástandið búið að vera mjög slæmt.
Hulda Vatnsdal








