Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á Ragnheiði Elínu Árnadóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. Eyverjar telja mikilvægt að forysta Sjálfstæðisflokksins endurspegli þann fjölbreytileika sem einkennir flokkinn.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Laugardaginn 12. júní kl. 10.58
Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu
- vilja fá hana sem varaformann Sjálfstæðisflokksins
Því er nauðsynlegt að landsbyggðin eigi fulltrúa í forystu flokksins. Það liggur beinast við að sá fulltrúi komi úr Suðurkjördæmi, kjördæminu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er sterkastur eins og sást í nýafstöðnum sveitastjórnarkosningum þegar flokkurinn vann stórsigur víða um kjördæmið og nýtur þar hlutfallslega mest fylgis.
Ragnheiður hefur sem oddviti flokksins í kjördæminu og sem formaður þingflokksins sannað sig sem leiðtogi og öflugur fulltrúi landsbyggðarinnar sem stendur vörð um grunnatvinnuvegi þjóðarinnar og er ötull talsmaður atvinnuuppbyggingar.
Eyverjar telja Ragnheiði réttu manneskjuna til að gegna embætti varaformanns og að hún muni vinna að sókn Sjálfstæðisflokksins um land allt með einstaklings- og atvinnufrelsi að leiðarljósi.
Fréttatilkynning









