Föstudaginn 18. júní kl. 14.56
Föstudagsgrínið:

Gamli maðurinn og læknirinn

Gamli maðurinn og læknirinn
80 ára gamall maður var í árlegri læknisskoðun og læknirinn spurði hann hvernig hann hefði það.
"Mér hefur aldrei liðið betur. Nýja konan mín er 18 ára og hún gengur með fyrsta barnið okkar!"
Læknirinn hugsaði um þetta eitt augnablik og sagði svo: "Einu sinni var maður sem var mjög ákafur skotveiðimaður, hann sleppti aldrei veiðitímabili".

"Dag einn var hann á mikilli hraðferð og hann greip með sér regnhlíf í staðinn fyrir riffilinn sinn.
 
Þegar hann var kominn langt inn í skóginn þá gengur hann fram á stóran og grimman skógarbjörn.
Hann miðar á hann með regnhlífinni og bang, björninn dettur niður dauður!"
 
"Það er óhugsandi", sagði gamli maðurinn, "einhver annar hlýtur að hafa skotið hann".
 
"Ja....það er nú eiginlega það sem ég var að reyna að segja, svaraði læknirinn".

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn