Miðvikudaginn 23. júní kl. 17.08

Mikil vinna í öllum frystihúsunum í Eyjum

- Godthaab í Nöf ætlar að skella sér í makrílvinnslu

Mikil vinna í öllum frystihúsunum í Eyjum Glaðlegar skvísur í Godthaab
FRÉTTIR sem koma út í dag, greina frá því að Godthaab í Nöf ætli að frysta makríl og mikill undirbúningur í gangi fyrir vinnsluna. „Við erum að klára að græja húsið hjá okkur og höfum fjárfest í vélum og pökkunar- og frystikerfi,“ sagði Daði Pálsson hjá Godthaab. „Vélar og pökkunarkerfi nýtist við vinnslu á gulllaxi og makríl og frystikerfið fyrir alla vinnsluna. Við stefnum á að vera tilbúnir með vinnsluna í byrjun júlí og verðum í samstarfi við Berg- Hugin og fáum hráefni af Vestmannaey og Bergey.“ Godthaab hefur hingað til fengist við bolfiskvinnslu..

Þá greina FRÉTTIR, einnig frá því, að mikil vinna sé nú báðum stóru frystihúsunum. „Það er unnið hálfan og stundum allan sólarhringinn í makríl og vantar bara herslumuninn að þetta sé alveg samfleytt,“ sagði Björn Brimar vinnslustjóri Ísfélagsins þegar FRÉTTIR spurðu hann frétta úr Ísfélaginu. „Þetta er alveg nýtt fyrir okkur, við gerðum tilraunir í Eyjum í fyrra og frystum svolítið á Þórshöfn.
 
Í Vinnslustöðinni er sömu sögu að segja. Anna Sigríður Hjaltadóttir, vinnslustjóri Vinnslustöðvarinnar sagði að makríll hefði verið frystur í þjá daga í frystihúsinu og búið að vinna um 130 tonn af afurðum. „Það er allt á fullu hjá okkur í bolfiski, humar og makríl. Gandí eru úti að frysta og Sighvatur og Kap eru búnir að landa þrisvar sinnum og við unnum makríl þegar þeir lönduðu síðast. “ 
Nánar er fjallað um þetta í FRÉTTUM sem koma út í dag.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn