Mánudaginn 28. júní kl. 10.53
Georg Eiður Arnarson bloggar:

Goggi býður í Blíðukró

Goggi býður í Blíðukró
Goslokahátíðin er um næstu helgi og að venju verður opið hús í Blíðukró á laugardagskvöldið.  Eins og áður þá fá allir sem vilja að fara upp og taka lagið og eða fara með gamanmál.  Nú þegar liggur fyrir að hljómsveitin Afrek muni taka lagið, einnig ætlar vinur minn Grétar Mar að reyna að mæta og segja sögur af hinum ýmsu ævintýrum sínum.

Sjálfur ætla ég að halda mig við mínar gömlu góðu sögur sem allir í kringum mig eru löngu orðnir leiðir á en meðal annars er þar sagan af því þegar ég og Páll Ókar fórum á „rúntinn saman“.
 
Einnig langar mig að bjóða sérstaklega öllum Blogg og Fésvinum mínum að kíkja við og skála við skipstjórann á Blíðunni.
 
Gleðilega goslokahátíð allir.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn