Miðvikudaginn 30. júní kl. 08.48
Páley Borgþórsdóttir skrifar:

Af hverju að kaupa merki goslokahátíðar?

Af hverju að kaupa merki goslokahátíðar?
Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður haldin hátíðleg um næstu helgi með fjölbreyttri skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Að hátíðinni er enginn aðgangseyrir og dagskrá helgarinnar bæjarbúum og gestum að kostnaðarlausu. Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að bjóða ávallt upp á metnaðarfulla barnadagskrá þessa helgi og verður engin undantekning gerð á þetta árið. Merki goslokahátíðar verður til sölu fyrir þessa hátíð og munu sölubörn ganga í hús auk þess sem merkin verða til sölu í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Eymundsson og á byggðasafninu.

Merkið kostar 1.000.- kr. og verður ágóða sölunnar varið í barnadagskrá hátíðarinnar og er ætlað að tryggja að ætíð verði hægt að standa fyrir veglegri dagskrá fyrir fjölskyldufólk. Það er von mín og trú að allir þeir sem ætla að njóta goslokahátíðarinnar muni sjá sóma sinn í því að festa kaup á slíku barmmerki og bera það yfir hátíðina. Ég skora hér með á alla Eyjamenn og gesti til þess að kaupa merki hátíðarinnar, bera það með stolti og leggja þannig sitt af mörkum til vandaðrar dagskrár.
 
Páley Borgþórsdóttir.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn