Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar samþykkti á aðalfundi að skrá hlutafé félagsins í evrum og að í kjölfarið yrði greiddur út 18% arður í evrum. Á árinu 2008 nýtti félagið sér heimild í lögum til að breyta reikningsskilum sínum úr íslenskum krónum í evrur. Stjórn og stjórnendur segja að reynslan sýni að sú ákvörðun hafi verið hárrétt, því að öðrum kosti hefði félagið hvorki haldið eigin fé sínu né getu til að greiða eigendum sínum arð.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 01. júlí kl. 14.35
Aðalfundur VSV
Greiddu 18% arð í evrum
Stjórn VSV Magnús Helgi Árnason, Haraldur Gíslason, formaður, Hjálmar Þór Kristjánsson, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri og Leifur Ársæll Leifsson, varaformaður.Eigið fé Vinnslustöðvarinnar er tæplega 30 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið tæp 33% samkvæmt nýsamþykktum reikningum 2009. Ef sömu reikningar félagsins hefðu verið gerðir upp í íslenskum krónum væri eigið fé hins vegar neikvætt um 872 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið væri neikvætt um 8,7%.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, tók á aðalfundinum einfalt dæmi til að sýna fram á hve litla þýðingu það hefði að tala um skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í íslenskum krónum, sem reyndar væri sígilt og vinsælt umræðuefni álitsgjafa og skoðanahönnuða í fjölmiðlum. Vinnslustöðin skuldar 61 milljón evra og hefur ekki skuldað minna í evrum frá því árið 2003 en í íslenskum krónum eru skuldir félagsins nú tvöfalt hærri en þær voru 2003. Tekjur félagsins í evrum á síðastliðnu ári voru hins vegar 20 milljónum evra meiri en árið 2003. Síðan spurði Sigurgeir B. fundarmenn: „Nær allar tekjur félagsins eru í erlendum myntum og hvaða þýðingu hefur þá í raun að velta vöngum yfir því að skuldir þess í íslenskum krónum hafi tvöfaldast við hrun krónunnar árið 2008?“
Vikublaðið Fréttir greindi frá.






.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

