Föstudaginn 02. júlí kl. 13.57
Föstudagsgrínið:

Skotinn sem átti grasið

Skotinn sem átti grasið
Skotinn var á heimleið og lét fara vel um sig í aftursætinu á stóru yfirstéttar limosinunni sinni.
 
Allt í einu kom hann auga á tvo menn við vegarbrúnina, sem voru að éta gras..
Honum varð svo mikið um þessa sjón að hann sagði bílstjóranum að stöðva bílinn.
 

 Hann gekk til mannanna og spurði annan þeirra: "Af hverju ert þú að borða gras?"
 
"Við eigum enga peninga fyrir mat" svaraði aumingja maðurinn "Við neyðumst til að borða gras"
 
"Fyrst svo er, getur þú komið með mér heim og ég skal gefa þér að borða", sagði Skotinn
 
"En, herra minn. Ég er með konu og tvö börn með mér, þau eru þarna undir trénu"
 
"Taktu þau bara með þér", svaraði Skotinn.
 
Svo sneri hann sér að hinum fátæka manninum og sagði "Þú kemur líka með okkur"
 
Sá svaraði, aumkunaverðum rómi:  "En ég er með konu og sex börn !"
 
"Taktu þau líka með" svaraði Skotinn.
 
Þau tróðu sér öll inn í bílinn, sem var hreint ekki auðvelt, jafnvel þótt limosínan væri stór.
 
Þegar þau voru lögð af stað, sneri annar fátæki maðurinn sér að Skotanum og sagði
   "Herra minn, þú ert góður maður. Þakka þér fyrir að taka okkur öll með þér"
 
"Mín er ánægjan", svaraði Skotinn.
 
"Þið verðið sko hrifin, þegar þið komið heim til mín" sagði Skotinn. "Grasið heima hjá mér nær manni alveg í hné"
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn