Jæja nú eru pungarnir farnir til makrílveiða, þ.e. Bergey/Vestmannaey að tvílembast. Dala Rafn fór aleinn á makríl og spennand að fylgjast með hvernig gengur. VSV skirrist við að hækka verðið í bræðsluna, eru komnir í 32 kr. en aðrir sem gera út á að bræða borga kr. 37-39 fyrir makrílinn. Svo er kapítuli út af fyrir sig að taka kr. 5 af þeim sem veiða fyrir að flytja aflann í land með Ísleifi. Báðir aðilar hagnast og ekki síst útgerðin. Á ekki að líðast á 21. öld.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 14. júlí kl. 11.22
Valmundur Valmundsson bloggar:
Bara blíða
Ef þetta lagast ekki þá verður „verðinu“ sagt upp og við vísum til Verðlagsstofu skiptaverðs.
Ég trúi því ekki að óreyndu að enn einu sinni verði borgað lægsta verð fyrir uppsjávarfisk í Verstöðinni.









