Sunnudaginn 18. júlí kl. 19.25

Ekkert vit í að halda áfram

- sagði sundkappinn Benedikt Lafleur sem þurfti að hætta eftir tæpar tvær sjómílur

Ekkert vit í að halda áfram Benedikt Lafleur, sjósundkappi.
Sjósundkappinn Benedikt Lafleur þurfti að hætta eftir tæplega tveggja mílna sund en Benedikt ætlaði að synda frá Landeyjahöfn og til Eyja, fyrstur manna.  Í samtali við Eyjafréttir sagði Benedikt að sundið hefði gengið vel framan af en þá hefði hann lent í köldum straumi frá Markarfljótsá auk þess sem bætt hefði í vind sem hann fékk beint í fangið.  Aðstæður hafi fljótlega orðið mjög erfiðar og því hafi verið eina vitið í að hætta.

"Það var ekkert vit í því að halda áfram og lenda í klandri.  Þannig að ég hætti eftir innan við tvær sjómílur.  Þetta var orðið alveg ómögulegt því ég lenti í mótstraumi og mjög köldum sjó.  Ég hallast helst að því að við höfum farið af stað á röngum stað.  En það er auðvitað alltaf hægt að vera vitur eftir á."
 
Benedikt sagði að sundið hefði byrjað vel.  "Þetta var fínt í byrjun, hitastigið á sjónum var gott og straumurinn lítill.  En um leið og ég komst í þennan kalda straum frá Markárfljótinu þá varð þetta erfitt.  Ég reyndi að berjast en komst bara ekki neitt áfram þannig að ég hætti.  Svona sund krefst mikils undirbúnings en vandamálið við þær upplýsingar sem ég fékk var að þær henduðu ekki til sjósunds.  Menn sem gáfu mér upplýsingar voru að miða við allt aðra hluti en að vera ofan í sjónum en nú er ég kominn með betri upplýsingar um leiðina þarna á milli og á örugglega eftir að reyna aftur."
 
Hvenær heldurðu að þú stingir þér aftur til sunds til Eyja?
"Ég get reyndar ekki reynt aftur strax á morgun vegna vinnu en ég á eftir að reyna þetta aftur.  Hvort það verði í ágúst eða á næsta ári kemur bara í ljós.  Ég ætla að taka Drangeyjasundið aftur en ég kem til með að synda þessa leið fyrr en síðar.  Svo var bara svo gaman að koma til Eyja, fallegur og góður staður."
 
Nú sigldir þú upp í Landeyjahöfn.  Hvernig leist þér á aðstæður þar?
"Markmiðið með þessu sundi var auðvitað að vekja athygli á þessari nýju siglingaleið.  En mér leist mjög vel á mannvirkið í Landeyjahöfn og þessa nýju siglingaleið.  Þetta á vonandi eftir að nýtast Eyjamönnum vel," sagði Benedikt að lokum.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn