Á þriðjudag verður Landeyjahöfn vígð við hátíðlega athöfn en Herjólfur siglir síðustu ferð sína til og frá Þorlákshöfn fyrri part dags. Klukkan 16.00 siglir skipið hins vegar í fyrsta sinn upp í Landeyjahöfn en um borð verður m.a. samgönguráðherra, Kristján L. Möller og aðrir ráðamenn. Eyjamönnum býðst að sigla með Herjólfi í þessari fyrstu ferð og vera viðstaddir vígsluathöfnina í Landeyjahöfn.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Sunnudaginn 18. júlí kl. 15.52
Eyjamönnum boðið að vera við vígslu Landeyjahafnar
- fyrsta ferðin ókeypis
Tekið verður við farþegum svo lengi sem pláss leyfir en eins og áður sagði leggur skipið úr höfn í Vestmannaeyjum klukkan 16.00. Herjólfur mun svo liggja við landfestar í Landeyjahöfn á meðan vígsluathöfnin fer fram en siglt verður til baka klukkan 19.00. Ekki er gert ráð fyrir bílaflutningum í þessari fyrstu ferð og ekki þarf að greiða fyrir ferðina.









