Sunnudaginn 18. júlí kl. 19.15
Íslandsmót unglinga í golfi:

Hallgrímur fékk silfrið

- frábæru móti lokið í Eyjum

Hallgrímur fékk silfrið
Hallgrímur fékk silfriðHallgrímur fékk silfriðHallgrímur fékk silfriðHallgrímur fékk silfrið
Hallgrímur Júlíusson varð annar í Íslandsmótinu í höggleik unglinga sem fór fram á golfvellinum í Vestmannaeyjum um helgina.  Hallgrímur varð aðeins tveimur höggum á eftir Bjarka Péturssyni, GB sem varð Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára en keppni þeirra tveggja var æsispennandi.  Þannig voru þeir jafnir í efsta sæti fyrir síðasta daginn en að lokum hafði Bjarki betur.  Úrslit mótsins má sjá hér að neðan.

Af öðrum Eyjakeppendum náði Sveinn Sigurðsson mjög góðum árangri en hann varð í 7. sæti í flokki 17-18 ára.  Sveinn lék hringina þrjá á 220 höggum eða 10 höggum yfir pari.  Þá varð Kristgeir Orri Grétarsson í 14. sæti á 228 höggum.  Sigríður Lára Garðarsdóttir varð 10. í flokki 15-16 ára en Sigríður lék á 274 höggum eða 64 yfir pari vallarins.
 
Úrslit mótsins (nafn, klúbbur, höggfjöldi og mismunur)
Piltar 17-18 ára
1. Guðmundur Ágúst Kristjáns. GR 209 -1
2. Rúnar Arnórsson GK 210 0
3. Magnús B. Sigurðsson GR 216 6
 
Stúlkur 17-18 ára
1. Karen Guðnadóttir GS 231 21
2. Arndís Eva Finnsdóttir GK 237 27
3. Berglind Björnsdóttir GR 238 28
 
Drengir 15-16 ára
1. Bjarki Pétursson GB 215 5
2. Hallgrímur Júlíusson GV 217 7
3. Ragnar Már Garðarsson GKG 220 10
 
Telpur 15-16 ára
1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 230 20
2. Guðrún Pétursdóttir GR 231 21
3. Sunna Víðisdóttir GR 238 28
 
Piltar 14 ára og yngri
1. Kristinn Reyr Sigurðsson GR 221 11
2. Birgir Björn Magnússon GK 228 18
3. Gísli Sveinbergsson GK 231 21
 
Stúlkur 14 ára og yngri
1. Þórdís Rögnvaldsdóttir GHD 262 52
2. Ragnhildur Kristinsdóttir GR 263 53
3. Sara Margrét Hinriksdóttir GK 272 62

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn