Kvennalið ÍBV lagði Fjarðabyggð/Leikni að velli í dag þegar liðin mættust á Hásteinsvellinum. Lokatölur urðu 5:1 og var sigur Eyjastúlkna nokkuð öruggur. Gestirnir skutu þó skelk í bringu stuðningsmanna ÍBV með því að minnka muninn í 2:1 í fyrri hálfleik en Eyjastúlkur svöruðu með þremur mörkum og þar við sat.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Sunnudaginn 18. júlí kl. 18.56
1. deild kvenna, B-riðill
Öruggur sigur hjá ÍBV
- lögðu Fjarðabyggð að velli í Eyjum 5:1
Kristín Erna Sigurlásdóttir og Hlíf Hauksdóttir gerðu tvö mörk hvor og Eva María Káradóttir eitt en Hlíf skoraði eitt mark úr vítaspyrnu. Mark Fjarðabyggðar/Leiknis var sömuleiðis skorað úr vítaspyrnu.









