Mánudaginn 19. júlí kl. 08.21

Charlton vill skoða Gunnar Heiðar betur

Charlton vill skoða Gunnar Heiðar betur
Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að enska félagið Charlton vilji skoða Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson betur en Gunnar Heiðar var hjá félaginu til reynslu fyrr í mánuðinum.  Gunnar segist vera á leið til félagsins í lok vikunnar en hann lék einn æfingaleik síðast þegar hann var til skoðunar en meiddist strax í upphafi og náði ekki að láta ljós sitt skína.  Forráðamenn félagsins vilja því sjá hann aftur í leik.

„Þeir hafa mikinn áhuga á að fá mig aftur út en mér gekk rosalega vel á æfingunum. Ég meiddist eiginlega strax í leiknum og var þá bara á öðrum fætinum. Stjórinn vill því sjá spila leik og það er ekkert mál fyrst þeir sýna mér áhuga. Ég mun því væntanlega vera hjá þeim í einhverja daga og spila einn eða tvo leiki,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið en hann er samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg en ólíklegt er að hann verði áfram í herbúðum félagsins.
 
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn