Enn er lögreglan í Vestmannaeyjum að taka ökumenn sem grunaðir eru um að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru stöðvarðir vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Fíkniefnapróf gaf jákvæða svörun við þvagprufum ökumannnanna og var því tekið úr þeim blóðsýni til frekari rannsókna. Í síðustu viku var sagt frá því í vikublaðinu Fréttum að málum af þessu tafi hafi fjölgað mikið á milli ára en það er ekki síst að þakka auknu eftirliti lögreglu og betri fíkniefnaprófum sem lögregla tekur strax.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Mánudaginn 19. júlí kl. 16.55
Tveir teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna
Þetta mál er meðal þess sem fjallað er um í dagbókarfærslu lögreglu sem má lesa hér að neðan:
Tiltölulega rólegt var hjá lögreglu í s.l. viku þó svo að alltaf sé eitthvað um að vera.
S.l. miðvikudag datt kona við Krónuna og slasaði sig lítillega. Var hún flutt með sjúkrabifreið að Heilbrigðisstofnuninni þar sem hún gekkst undir læknisskoðun.
Þennan sama dag var tilkynnt um að ekið hefði verið á konu á reiðhjóli á gatnamótum Heiðarvegar og Faxastígs. Þarna hafði bifreið verið ekið á konu á reiðhjóli og féll konan í götuna. Fann hún fyrir smávægilegum eymslum og var með skrámur á eftir. Að öðru leiti slapp hún mjög vel frá árekstrinum. Þá var tilkynnt um einn minniháttar árekstur milli tveggja bifreiða og var hann afgreiddur með tjónaskýrslu tryggingafélaganna.
Þrenn eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Í fyrsta tilvikinu var um að ræða rúðubrot á verkstæði Ella P. Í öðru tilvikinu hafði ölvaður maður gengið yfir bifreið svo hún skemmdist. Svo í þriðja tilvikinu voru unnar skemmdir á umferðarmerki. Vitað er hverjir voru að verki í öllum tilvikunum.
S.l. sunnudag var tilkynnt um innbrot inn í netaverkstæði Ísfells við Flatir. Voru unnar skemmdir á tveimur hurðum en við fyrstu sýn virtist engu hafa verið stolið. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar varðandi innbrot þetta eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lögreglu.
Um helgina var lögregla kölluð að Lundanum vegna konu sem væru þar ölvuð og til vandræða. Er lögregla kom á staðin var konan farin og málið þar með búið.
Af umferðinni er það að frétta að tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Gaf fíkniefnapróf jákvæða svörun við þvagprufum úr ökumönnunum. Var því tekið úr þeim blóðsýni sem verður rannsakað frekar.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn. Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur. Þá voru skráningarmerkin tekin af einni bifreið þar sem lögboðnar tryggingar voru ekki í gildi.







.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

