Mánudaginn 19. júlí kl. 13.26

Vinnslustöðin auglýsir eftir fólki

Vinnslustöðin auglýsir eftir fólki
Vinnslustöðin auglýsir í heilsíðu auglýsingu í Fréttablaðinu í dag eftir fólki í vinnu.  Samkvæmt auglýsingunni hefur Vinnslustöðin breytt stjórnskipulagi sínu og því er auglýst eftir nýju fólki til að manna nýjar stöður í fyrirtækinu, og nokkrar stöður til viðbótar.  Um er að ræða sviðsstjóra bolfisks, uppsjávarfisks, rekstrarstjóra, sölumann ferks og frosins bolfisks og verkstjóra í fiskvinnslu.

Í auglýsingunni segir orðrétt:
„Eyjamenn eru í toppbaráttu í fótbolta karla og kvenna. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum (VSV) leikur til sóknar í úrvalsdeild íslensks sjávarútvegs.“
 
„Traust fyrirtæki eru undirstöður byggðarlaga sinna og án blómlegrar byggðar fá fyrirtæki illa þrifist. Fólki hefur fjölgað í Eyjum og þar vantar fleiri vinnufúsar hendur á sama tíma og atvinnu skortir víða um land.  Vinnslustöðin er í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Rekstrartekjur félagsins námu 8,8 milljörðum króna á árinu 2009. Reksturinn skilaði um 900 milljóna króna hagnaði,“ segir í auglýsingunni en þar er einnig sagt frá því að starfsmenn fyrirtækisins séu nú 280 talsins og hafi fjölgað um 50 á aðeins einu ári.
 
Um stöðurnar sem í boði eru segir: 
 
Sviðsstjóri bolfisks
Sviðsstjóri nýs bolfisksviðs ber ábyrgð á rekstri þess. Sviðið
velti 4 milljörðum króna árið 2009. Verkefni sviðsstjóra varða
m.a. yfirsýn og samræmingu veiða, vinnslu, markaðssetningar
og sölu afurða, áætlanagerð og ábyrgð á starfsmannamálum
sviðsins.
 
Sviðsstjóri uppsjávarfisks
Sviðsstjóri nýs uppsjávarsviðs ber ábyrgð á rekstri þess. Sviðið
velti 3,5 milljörðum króna árið 2009. Verkefni sviðsstjóra
varða m.a. yfirsýn og samræmingu veiða, vinnslu, markaðssetningar
og sölu afurða, áætlanagerð og ábyrgð á starfsmannamálum
sviðsins.
 
Rekstrarstjóri
Yfirmaður nýs rekstrarsviðs ber ábyrgð á tæplega 5 milljarða
króna rekstrarkostnaði VSV á ári. Hann sér um upplýsingatæknimál,
tæki, vélbúnað, uppbyggingu og viðhald fasteigna
og skipa, framkvæmdir, fjárfestingar, rekstur frystigeymslu
og starfsmannamál félagsins.
 
Sölumaður fersks og frosins bolfisks
Meginverkefnið er að annast sölu allra afurðaflokka bolfisksviðs,
gera söluáætlanir, greina þarfir markaðarins,
annast vörulýsingar og vinnsluleiðbeiningar, kynna viðskiptavinum
félagið og afurðir þess og gera sölusamninga.
 
Verkstjórar í fiskvinnslu
Meginverkefni varða m.a. ábyrgð á daglegri vinnslu í samráði
við vinnslustjóra og gæðaeftirlit.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn