Þriðjudaginn 20. júlí kl. 14.59
Tregablandin brottför:

Herjólfur kvaddi Þorlákshöfn í dag

Herjólfur kvaddi Þorlákshöfn í dag Þorlákshöfn kvödd í síðasta sinn (ljósm.: Sunnlenska)
Herjólfur þeytti þokulúðra skipsins þegar það lagði frá bryggju í Þorlákshöfn  í hádeginu í dag, í síðasta sinn. Skipið var fánum skrýtt og ekki laust við trega í hjörtum margra sem nú voru að sigla frá Þorlákshöfn, sennilega í síðasta skiptið. Þorlákshöfn hefur verið áfangastaður Herjólfs í 34 ár eða frá árinu 1976, þegar  mið-Herjólfur kom til landsins.

Raunar hafði elsti Herjólfur siglt til Þorlákshafnar yfir sumartímann eitthvað áður. En annars sigldi skipið alltaf til Reykjavíkur.

-  Íbúum Þorlákshafnar er þakkað fyrir góða þjónustu við farþega Herjólfs og skipið sjálft. Vestmannaeyingar munu ávallt minnast Þorlákshafnarbúa af góðu einu og óska þess að brotthvarf Herjólfs úr Þorlákshöfn verði íbúum hvatning til frekari sóknar og velmegunar.  - Heill Þorlákshöfn.

 

 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn