Þriðjudaginn 20. júlí kl. 12.18

Hvernig er Landeyjahöfn?

Hvernig er Landeyjahöfn?

Í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun er farið ítarlega yfir alla tölfræði um Landeyjahöfn.  Þar kemur m.a. fram að hafnarmynnið sé 90 metrar á breidd og 600 metrum utan við ferjubryggjuna.  Bryggjan inni í höfninni er steypt úr forsteyptum einingum og er 70 metrar að lengd og með 10 metra og 15 metra löngum göflum.  Þá er farþegaaðstaða í Landeyjahöfn 400 fermetrar og er húsið steypt með ölduformi.


Höfnin
Hafnarmynnið er 90 metrar á breidd og um 600 metrum utan við ferjubryggjuna. Inn af brimvarnargörðunum er innri höfn með bryggju fyrir ferju og snúningsrými. Landgræðsla hófst sumarið 2007 og hefur staðið óslitið síðan. Brimvarnar-, sjóvarnar- og flóðavarnargarðar auk bryggju-, vega- og brúargerðar voru boðnir út vorið 2008. Lægstbjóðandi var Suðurverk og hófst framkvæmdir það haust. Byrjað var á að vinnslu grjóts úr námu í Seljalandsheiði og því komið fyrir við Markarfljót og um miðjan maí 2009 hófst röðun grjótgarða. Til að valda sem minnstri röskun á straumum og sandburði með ströndinni voru báðir brimvarnargarðarnir byggðir samtímis. 
Byrjað var að steypa bryggjuna í byrjun árs 2010, smíði farþegaaðstöðunnar hófst í febrúar og smíði ekjubrúar og farþegalandgangs í mars. Dýpkun hafnarinnar hófst í apríl 2010. Í maí 2010 var síðasta verkið, lóðafrágangur, boðið út og stefnt er að því að honum verði lokið í haust. 
 
Bryggjan
Bryggjan er steypt úr forsteyptum einingum, 400 mm þykkum holplötum með 15 sentimetra ásteypulagi sem hvíla á steyptum bitum á stálstaurum með þvermálið 245 millimetrar. Bryggjan er 70 metrar að lengd með 10 metra og 15 metra löngum göflum. 
 
Dýpkun
Dýpka þarf innsiglingu innan hafnar sem er 70 m breið og dýpi 7,9 metrar. Í innri höfn var dýpkað snúningssvæði 140 m fyrir Herjólf og 5,5 m djúpt. Utan hafnar er sandrif sem gert er ráð fyrir að þurfi að dýpka. Í framtíðinni þarf stöðugt að dýpka og geta orðið verulegar sveiflur í magni milli ára. Magn dýpkunarefnis er um 220.000 rúmmetrar. 
 
Farþegaaðstaða
Farþegaaðstaðan er um 400 fermetrar. Húsið er steypt með ölduformuðu þaki. Við hönnun var við það miðað að flæðið verði sem best um húsið. 
 
Ekjubrú og farþegalandgangur
Ekjubrú er um 19 m löng, með 4,5 m breiða útakstursbraut. Brúin sjálf vegur um 30 tonn og getur borið 100 tonna ökutæki. Farþegalandgangurinn er 15 metra langur og 1,5 metra breiður. 
 
Lóðafrágangur
Lóðin er 4 hektarar að stærð og þar af malbikað bílastæði og vegir 2 hektarar. Gert er ráð fyrir leiksvæði fyrir börn, biðstæði fyrir um 70 bíla, bílastæði fyrir 250 bíla og gámavöll fyrir frystigáma. 
 
Vegir
Vegagerðin hafði umsjón með gerð vegar að höfn. Nýr 11,8 km langur vegur var lagður meðfram vesturbökkum Markarfljóts milli Hringvegar og Land¬eyjahafnar. Einnig var lagður nýr vegur milli flugvallarns á Bakka og hafnarinnar og smíðuð 20 m löng brú yfir Ála. 
 
Landgræðsla
Landgræðsla á svæðinu hófst á meðan mannvirki voru enn á teikniborðinu. Ein af forsendum fyrir farsælum rekstri ferju milli Landeyjahafnar og Eyja er að umferð á landi til og frá höfninni sé ávallt örugg fyrir sandfoki. Markmið landgræðslu var að sandfokið hefði stöðvast að mestu þegar höfnin yrði tekin í notkun en viðhaldsaðgerðir þurfi til ársins 2014.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Stalla-Hú í Árbænum
Þjóðhátíð 2010 - Brekkusöngur og blys
Þjóðhátíð 2010 - Sunnudagur
Þjóðhátíð 2010 - Söngvakeppni barna og fleira
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi