Á mánudaginn kl. 13 fer í loftið útvarpsþátturinn Í brekkunni á Suðurland FM. Þátturinn, sem er upphitunarþáttur fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, verður í loftinu fram á laugardag og ávallt þrjár tíma í senn og frá þriðjudegi verður þátturinn sendur beint út frá Volcano Café í Vestmannaeyjum. Brgsveinn Theodórsson, Bessi, segir að það verði þétt dagskrá alla dagana, en hann og Vignir Egill stjórna þættinum.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 20. júlí kl. 14.53
Suðurland FM 95,3:
Í brekkunni í loftið á mánudaginn
„Við erum búnir að raða upp ansi þéttri dagskrá alla dagana og það verður varla dauð sekúnda,“ segir Bessi, léttur í bragði. „Við fáum fullt af góðum gestum í spjalla og tónlistarmenn koma og spila í beinni. Við verðum með hagnýtar upplýsingar fyrir hinn almenna þjóðhátíðargest, fræðust betur um helstu hefðir og margt fleira.“
Bessi segir að allt verða gert til að gera þáttinn eins lifandi og mögulegt er. „Við verðum til dæmis allt með upptökutæki á okkur hvert sem við förum og tökum viðtöl út um allan bæ sem svo verða spiluð í þættinum daginn eftir,“ segir Bessi sem er orðinn fullur eftirvæntingar fyrir Þjóðhátíðinni. „Þetta verður frábært eins og alltaf og get varla beðið,“ segir Bessi. „Það er ekki verra þegar maður fær að hita upp í útvarpinu og vonandi að fólk taki þátt rétt eins og það gerði í fyrra.“
Suðurland FM næst í Vestmannaeyjum á tíðinni á FM 95,3 og þá er einnig hægt að hlusta á netinu www.963.is.









