Þriðjudaginn 20. júlí kl. 08.45

Landeyjahöfn vígð í dag

Landeyjahöfn vígð í dag Olga Axelsdóttir, Hólmum tók þessa mynd af Herjólfi í Landeyjahöfn.
Í dag verður Landeyjahöfn formlega vígð en Herjólfur er nú í sinni síðustu ferð til Þorlákshafnar.  Eftir fyrri ferð skipsins samkvæmt áætlun, verður siglt upp í Landeyjahöfn í fyrsta skipti.  Auk boðsgesta, býðst Eyjamönnum að koma með skipinu, svo lengi sem pláss leyfir.  Komið verður til baka klukkan 19:00, eftir að athöfn lýkur.

Sighvatur Jónsson, fréttamaður Ríkisútvarpsins í Eyjum tók saman stutta samatekt á gangi mála í Landeyjahöfn og má lesa samantektina hér að neðan:
 
Nú eru um fjögur ár liðin frá því að ákveðið var að stytta siglinguna milli lands og eyja með ferjuhöfn í Bakkafjöru. Með því voru slegnar út hugmyndir eins og jarðgöng og hraðskreiðari ferja til áframhaldandi siglinga í Þorlákshöfn. 
 
Á vordögum 2008 óskaði Siglingastofnun eftir útboðum í hafnarframkvæmdir í Bakkafjöru. Meðal atriða á verklistanum voru tveir 700 metra hafnargarðar, um fjögurra kílómetra sjóvarnagarður og tæplega tólf kílómetra vegur frá þjóðveginum að höfninni.
 
Fljótlega eftir undirskrift verksamninga í ágúst hófust efnisflutningur ofan af Seljalandsheiði á svokallaðan millilager við Markarfljót. Rúmlega milljón tonn af grjóti þurfti að flytja þaðan á vörubílum undir þjóðveginn vegna framkvæmda við hafnargarðana.
 
Í kjölfar bankahrunsins var hætt við smíði nýs Herjólfs. Á tímabili var rætt um að leigja danska ferju sem þótti fýsilegri kostur en að nota gamla Herjólf áfram þar sem hann ristir of djúpt fyrir nýju höfnina. Á endanum var þó ákveðið að nota Herjólf áfram, og það án mikilla breytinga.
 
Undir árslok 2009 voru garðarnir komnir í fulla lengd en ekki hæð, svo vel gekk yfir þá í roki. Sandur truflaði menn og vélar og veður tafði vinnu við frágang hafnargarðanna. Áfram var stefnt að opnun hafnarinnar 1. júlí en vegna flóða og eldgosa var því seinkað til 21. júlí.
 
Herjólfur siglir sína síðustu ferð í Þorlákshöfn í fyrramálið og fer í framhaldi í fyrstu opinberu ferðina til Landeyjahafnar. Nýja höfnin verður vígð klukkan hálf fimm á morgun. Áætlunarsiglingar hefjast á miðvikudaginn og þá fer Herjólfur fjórar ferðir milli lands og eyja í stað tveggja áður.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn