Þriðjudaginn 20. júlí kl. 16.15
Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundaði um borð í Herjólfi á leið í Landeyjahöfn:

Það er von og trú bæjarstjórnar að þjónusta Landeyjahafnar verði til verulegra hagsbóta fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum

Það er von og trú bæjarstjórnar að þjónusta Landeyjahafnar verði til verulegra hagsbóta fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum
Eftir um það bil 15 mínútur verður Landeyjahöfn formlega vígð.  Í tilefni af því fundaði bæjarstjórn Vestmannaeyja um borð í Herjólfi kl. 16.15 í fyrstu ferð skipsins í nýjahöfn.  Svo hljóðandi samþykkt var þar gerð:

Á vígsludegi Landeyjahafnar fagnar Bæjarstjórn Vestmannaeyja þeim miklu samgöngubótum sem falist geta í tilkomu hennar.  Nálægðin  milli Vestmannaeyjahafnar og Landeyjahafnar styttir ekki einungis ferðatíma milli lands og Eyja heldur gefur hún einnig tækifæri á tíðari og hagkvæmari ferðum en áður hefur þekkst í samgöngum á sjó við Vestmannaeyjar.  Í því verður hin raunverulega samgöngubót fólgin.
 
Bæjarstjórn Vestmannaeyja þakkar þeim fjölmörgu  sem lagt hafa lóð sín á þá vogarskál sem gert hefur Landeyjahöfn að veruleika. Það er von og trú bæjarstjórnar að þjónusta Landeyjahafnar verði til verulegra hagsbóta fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum  með auknum lífsgæðum bæjarbúa og velsæld.
 
Þannig samþykkt á aukafundi bæjarstjórnar um borð í m/s Herjólfi á leið til Landeyjahafnar 20. júlí 2010. 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn