Miðvikudaginn 21. júlí kl. 08.15
Kvennaknattspyrna:

Edda María lánuð en fær ekki að spila

Edda María lánuð en fær ekki að spila Mynd: Hafliði Breiðfjörð/Fótbolti.net
Edda María Birgisdóttir miðvallarleikmaður hefur verið lánuð til ÍBV frá Stjörnunni og mun leika með Eyjakonum í 1. deildinni í fótbolta í sumar. Edda María er með góða reynslu úr úrvalsdeildinni en þar hefur hún leikið með Fjölni og Stjörnunni. Hún lék 16 leiki í úrvalsdeildinni í fyrra og 18 leiki þar áður, en hefur aðeins náð sex leikjum í ár sem orsakast að hluta til af meiðslum.

Edda María er þegar komin með leikheimild og hefði því átt að geta leikið með ÍBV gegn Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar á laugardag en samkvæmt Einar Páli Tamimi, formanni meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni, var hins vegar ákvæði í lánssamningnum um að Edda María mætti ekki spila gegn Stjörnunni í nokkru móti.
 
www.mbl.is greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn