Miðvikudaginn 21. júlí kl. 11.08

Mikið að gera í afgreiðslu Herjólfs fyrsta daginn

Mikið að gera í afgreiðslu Herjólfs fyrsta daginn
Starfsfólk í afgreiðslu Herjólfs hefur í mörg horn að líta fyrsta daginn sem skipið siglir í Landeyjahöfn.  Mikið er hringt inn og bæði spurt bókað en skipið siglir samkvæmt áætlun fjórar ferðir í dag en fimm á morgun, fimmtudag.  Uppselt var fyrir bíla í dag í tvær ferðir af fjórum frá Landeyjahöfn en Herjólfur tekur alls 60 fólksbíla, ef enginn vöruflutningavagn er með í ferðinni.  Þá er pláss fyrir 400 farþega í hverri ferð.

Samkvæmt upplýsingum úr afgreiðslu Herjólfs flytur skipið 726 farþega til Eyja í dag en 529 frá Eyjum.  Þá er mikið búið að panta í ferðir skipsins um helgina en fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag siglir Herjólfur fimm ferðir en fjórar aðra daga vikunnar.
 
Smávegis byrjunarörðugleikar voru þó í morgun en Herjólfur tafðist um hálftíma í fyrstu ferð frá Landeyjahöfn.  Bókunarkerfi var ekki tilbúið í morgun í Landeyjahöfn og því tók lengri tíma að afgreiða skipið en vanalegt er.  Hins vegar er búist við að bókunarkerfið verði komið upp síðar í dag.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn