Í dag fundaði stýrihópur vegna þjóðhátíðarinnar með þjónustuaðilum í Vestmannaeyjum. Í stýrihópnum eru Elliði Vignisson, bæjarstjóri, Ólafur Snorrason, Sigurður Smári Benónýsson frá Vestmannaeyjabæ og Páll Scheving, Tryggvi Már Sæmundsson, Guðjón Gunnsteinsson og Birgir Guðjónsson frá Þjóðhátíðarnefnd. Á fundinum kom m.a. fram að þjóðhátíðarnefnd ætlar að halda úti strætóferðum um bæinn og koma upp tjaldstæði við Áshamar.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 21. júlí kl. 17.14
Strætó og nýtt tjaldstæði á Þjóðhátíð
- Aldrei áður hefur verið unnið jafn vel að undirbúningi hátíðarinnar segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Strætóferðunum er ekki ætlað að vera í samkeppni við bekkjabílana frægu sem hafa fylgt þjóðhátíðinni eins lengi og elstu menn muna. Strætó mun ganga hring um bæinn en ekki fara inn í Herjólfsdal. Í bænum verða strætóstopp þar sem strætó stoppar í 2-3 mínútur. Gjaldtaka og þjónusta verður í samræmi við það sem almennt er í þjónustu þeirra.
Þá verður komið upp nýju tjaldstæði við Áshamar, nánar tiltekið á grasflötinni fyrir neðan þverblokkina. Skátarnir munu sjá um rekstur tjaldsvæðisins og einnig við Þórsheimilið. Svæðin verða afgirt og afmörkuð en girt verður með tveggja metra hárri girðingu allan hringinn. Þá verður vönduð og öflug gæsla á svæðinu, góð salernisaðstaða, sorpgámar, vatn, rafmagn, upplýsingatöflur og fleira.
„Þjóðhátíð Vestmannaeyja er 130 ára og það er ástæða fyrir því að hátíðin hefur verið haldin þetta lengi. Hátíðin byggist fyrst og fremst á gestrisni og velvilja okkar heimamanna en að sama skapi förum við fram á að gestir okkar sýni okkur og bænum tilhlýðilega virðingu,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri.
„Okkar höfuðáhersla er að hátíðin sé haldin í sátt og samlyndi við heimamenn. Okkur Eyjamönnum hefur borið gæfa til að þróa þjóðhátíðina enda er stangastökk og kleinur ekki aðalmálið í dag. Hátíðin verður að fá að þróast áfram en við leggjum mikla áherslu á að það sé gert í samráði við eigendur hátíðarinnar, íbúa Vestmannaeyjabæjar.“
Hvað með þessar nýjungar, strætó og nýtt tjaldstæði?
„Strætó mun keyra ákveðinn hring en við urðum varir við það í fyrra að þrátt fyrir gott veður, þá komust bekkjabílarnir ekki yfir að keyra hátíðargestum út í bæ. Strætó mun að einhverju leyti taka álagið af bekkjabílunu en Strætó mun ekki vera í samkeppni við þá. Varðandi tjaldstæðið þá höfum við verið í sambandi við íbúa í hverfinu og þeir hafa sett fram ákveðnar óskir sem við höfjm reynt að verða við. En þarna verður öflug og vönduð gæsla og reynt að hafa aðstöðuna eins góða og mögulegt er,“ sagði Elliði að lokum.








