Miðvikudaginn 21. júlí kl. 13.02

Takmarkanir siglinga í Landeyjahöfn

Takmarkanir siglinga í Landeyjahöfn
Óyfirbyggðir smábátar mega ekki sigla í Landeyjahöfn fari ölduhæð yfir einn metra samkvæmt nýrri reglugerð samgönguráðuneytisins. Stefnt er að því að framkvæmdum í nýju höfninni verði að mestu lokið í haust.

Herjólfur siglir í dag fyrstu áætlunarferðir milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar sem var vígð formlega í gær. Framkvæmdin kostar tæpa fjóra milljarða króna en ekki var gert ráð fyrir aðstöðu fyrir smábáta, sem áætlað er að kosti 80 milljónir að útbúa. Fyrir skemmstu þurfti Siglingastofnun að ítreka að öll umferð smábáta um höfnina væri bönnuð. Bent var á að mikil umferð væri farin að skapa hættu og valda töfum á vinnu verktaka.
 
Sigmar Jónsson, hafnarvörður í Landeyjahöfn, segir smábátaaðstöðu þar nauðsynlega áður en einhver drepi sig í grjótinu, eins og hann tekur til orða. Hann á von á því að töluverð umferð smábáta verði um höfnina yfir verslunarmannahelgina.
 
Þess var beðið að reglugerð yrði sett um framhald mála sem nú hefur tekið gildi. Samkvæmt henni mega fiskiskip undir 15 metrum ekki sigla fari ölduhæð yfir 2,4 metra. Viðmiðið fyrir báta undir 15 metrum er 1,7 metra ölduhæð og óyfirbyggðir bátar mega ekki sigla fari ölduhæð yfir 1 metra á Bakkafjörudufli.
 
Ekki er þó öllum framkvæmdum lokið í Landeyjahöfn. Munar þar mestu um að vestari hafnargarðurinn er ekki fullbúinn. Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar, segir stefnt að því að öllum framkvæmdum verði að mestu lokið í haust.
 
 
Tekið af www.ruv.is

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn