Ein af þeim nýjungum sem voru teknar upp við afgreiðslu Herjólfs þegar skipið hóf siglingar í Landeyjahöfn, var breytingagjald á pöntunum. Breytingagjaldið var upphaflega 1.000 krónur en hefur nú verið lækkað í 500 krónur. Hildur Sævaldsdóttir, hjá Herjólfi segir nauðsynlegt að hafa breytingagjald til að minnka óþarfa pantanir í skipið.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 09.43
Búið að lækka breytingagjald í Herjólf í 500 krónur
„Hingað til hefur verið hægt að breyta miðanum án athugasemda og með fullri endurgreiðslu mínútu fyrir brottför. Því hefur stundum verið upppantað á bíladekkið klukkutíma fyrir brottför en svo hafa verið laus pláss vegna þess að fólk er að afpanta með skömmum fyrirvara og fyrir vikið komast færri með skipinu. Með þessari breytingu er ætlunin að koma í veg fyrir að verið sé að teppa pláss á bíladekkinu í Herjólfi.“
Eins og áður sagði verður breytingagjaldið nú 500 krónur en hægt verður að taka út breytingagjaldið á afsláttarkortinu. „Nú erum við hætt að tala um einingakort eða einingar. Þetta eru afsláttarkort með ákveðinni inneign sem fólk kaupir og fær afsláttarkjör á ferðum.“
Hvað ef fólk verður t.d. fyrir óhappi og kemst ekki í tæka tíð í Herjólf, þarf það fólk að greiða breytingagjald?
„Í sérstökum neyðartilfellum verður hvert mál skoðað fyrir sig,“ sagði Hildur að lokum.








