Útvarpsstöðin Gufan fer aftur í loftið fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Gufan var endurvakin í fyrra í tilefni þess að þá voru 20 ár liðin frá því að stöðin var fyrst starfrækt. Leikurinn verður endurtekinn nú og hefjast útsendingar með formlegum hætti í fyrramálið, föstudaginn 23. júlí, klukkan 9 og standa yfir hátíðina. Gufan hitar upp fyrir þjóðhátíð með tónlist, fréttum og spjalli um allt sem viðkemur hátíðinni.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 12.07
Gufan hitar upp fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2010
Prufuútsendingar Gufunnar eru hafnar og er bæði hægt að hlusta á netinu í gegnum http://www.gufan.is og á tíðninni FM 104,7 í Vestmannaeyjum. Útsendingar Gufunnar nást einnig í nýju Landeyjahöfninni.
Hópurinn sem stendur að baki Gufunni er skipaður gömlum reynsluboltum sem tóku þátt í þjóðhátíðarútvarpinu á upphafsárum þess og yngri útvarpsmönnum. Meðal dagskrárgerðarmanna eru Andri Hugo Runólfsson, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Geir Reynisson, Gunnar Friðberg Jóhannsson og Sighvatur Jónsson.
Hægt er að hafa samband við Gufuna í gegnum tölvupóstinn gufan@gufan.is eða á nýrri Facebook síðu: http://www.facebook.com/gufan#!/profile.php?id=100001275043791&ref=ts. Þá verður einnig hægt að nota gamla góða símann til að hringja í útsendingarnúmerið 481 3443.
Áhugasömum auglýsendum er bent á að hafa samband við Bjarna Ólaf í síma 896 6818 eða á tölvupóstinn daddi.hem@gmail.com.








