Búið er að veiða um 71,6% af humarkvótanum, sem er 2.200 tonn upp úr sjó. Rammi hf. og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum eru með um helming kvótans og hefur gengið vel hjá Ramma en VSV á meira eftir þar sem fyrirtækið geymdi 130 tonn frá síðasta ári.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 08.47
Humarveiðin gengur vel
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að veiðin gangi vel þessa dagana en sömu sögu hafi ekki verið að segja í júní. Kvóti félagsins er um 560 tonn fyrir utan fyrrnefnd 130 tonn og sjá fjórir bátar um veiðina.
Markaðurinn er betri en í fyrra og verðið á stóra humrinum hefur hækkað, að sögn Sigurgeirs. Hins vegar hefur veiðin ekki gengið eins vel og undanfarin ár og því má gera ráð fyrir að menn þurfi að hafa sig alla við til þess að ná kvótanum.
Kvóti Ramma er um 500 tonn og er hann unninn í Þorlákshöfn, en veiðar og vinnsla liggja niðri fram yfir verslunarmannahelgi.
www.mbl.is greindi frá.







.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

