Fimmtudaginn 22. júlí kl. 18.47

Óviðkomandi umferð skipa og báta um Landeyjahöfn bönnuð

Óviðkomandi umferð skipa og báta um Landeyjahöfn bönnuð
Öll umferð annarra skipa og báta en Herjólfs um Landeyjahöfn er bönnuð.  Þetta segir í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun sem send var út nú síðdegis en ástæðan er sú að bannið stendur á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð.  Einnig er nauðsynlegt að takmarka siglingar út frá slysahættu, þar sem að svæðið er ófrágengið og framkvæmdir enn í gangi, segir í fréttatilkynningunni

Með vísan til 3. mgr. 4. gr. hafnarreglugerðar fyrir Landeyjahöfn nr. 590/2010, hefur Siglingastofnun ákveðið að banna umferð annarra skipa og báta en Herjólfs, á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Einnig er nauðsynlegt að takmarka siglingar út frá slysahættu, þar sem að svæðið er ófrágengið og framkvæmdir ennþá í gangi.
 
22. júlí 2010
Siglingastofnun Íslands

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn