Föstudaginn 23. júlí kl. 13.43

Sjúkraflugvél verður staðsett í Eyjum yfir Þjóðhátíðina

Sjúkraflugvél verður staðsett í Eyjum yfir Þjóðhátíðina
Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Sjúkratrygginga Íslands og Mýflugs, um að staðsett verði sjúkraflugvél í Eyjum yfir Þjóðhátíðina. Er kostnaður vegna þess 725 þúsund krónur.

Fram kemur ná vef heilbrigðisráðuneytisins, að samkomulagið við Mýflug  feli í sér að frá hádegi föstudaginn 30. júlí til miðnættis mánudaginn 2. ágúst verði Chieftainvél Mýflugs staðsett í Vestmannaeyjum til sjúkraflutninga.

Miðað er við það að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja beri ábyrgð á og útvegi sjúkraflutningamenn eða aðra heilbrigðisstarfsmenn ef þörf krefur, til sjúkraflutninga með Chieftainvélinni meðan vélin verður staðsett í Vestmannaeyjum. 

Mýflug hefur annast sjúkraflug á Vestmannaeyjasvæði frá Akureyri í kjölfar þess að Flugfélag Vestmannaeyja, sem áður hafði um skeið sinnt fluginu, missti flugrekstrarleyfi sitt.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn