Föstudaginn 23. júlí kl. 09.38

Veitingahús opnað í Höllinni yfir þjóðhátíð

- mæta brýnni þörf fyrir stóran og rúmgóðan veitingastað

Veitingahús opnað í Höllinni yfir þjóðhátíð
Nú hafa þeir Björgvin Þór Rúnarsson, Hallarbóndi og Einsi Kaldi tekið saman höndum fyrir þjóðhátíð og hafa ákveðið að opna veitingahús í Höllinni.  Með því að opna staðinn segjast þeir félagar vera mæta brýnni þörf fyrir stóran og rúmgóðan veitingastað, eins og segir í fréttatilkynningu frá þeim en hana má lesa hér að neðan.

Í ljósi bættra samgangna og mikilla bókana á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2010, Hafa Hallarmenn ákveðið að opna Höllina fyrir þjóðhátíðargesti, en með því vilja þeir leggja sitt af mörkum til að mæta brýnni þörf fyrir stóran og rúmgóðan veitingastað, sem um leið léttir talsvert á umferðinni í miðbænum yfir daginn.
 
Á boðstólum verður dýrindis matur sem hægt verður að skola niður með góðum veigum.  Verði verður stillt mjög í hóf.  Einsi Kaldi ásamt hans fólki mun sjá um matseldinga og verður enginn svikinn af þeim veitingum sem þar verða fram bornar.
 
Alla þjóðhátíðardagana verður boðið upp á skemmtidagskrá, en þar munu hinir ýmsu listamenn koma fram.
 
Opið verður fimmtudag til mánudags frá klukkan 13 til 19.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn