Laugardaginn 24. júlí kl. 10.19

Knattspyrna og aftur knattspyrna

Knattspyrna og aftur knattspyrna Úr leik KFS og Afríku fyrr í sumar
Það er mikið um að vera á knattspyrnusviðinu í Eyjum í dag. Auk bikarleiks ÍBV og Stjörnunnar kl. 14.00 verður einnig leikur KFS og KFK á Helgafellsvelli og hefst sá leikur einnig kl. 14.00. Þessi tvö lið berjast um laust úrslitasæti í  B-riðli 3. deildar.

Tveir nýir leikmenn munu leika með KFS í þessum leik. Guðjón Ólafsson (Sigurvinssonar) hefur komið til KFS að láni frá ÍBV. Guðjón er búinn að ná sér af erfiðum meiðslum og er hann mikill liðsstyrkur fyrir KFS. Þá hefur Steinar E. Knútsson einnig komið til KFS frá ÍBV en hann er leikmaður 2. flokks félagsins. Hann er varnarmaður og styrkur fyrir KFS að fá hann í baráttuna sem er framundan.
KFS er í baráttunni um að komast í úrslitakeppnina og er sem stendur í 3. sæti riðilsins. Sigur í leiknum myndi koma KFS í 2. sæti, a.m.k. tímabundið, en Ægir sem er nú í 2. sæti á leik á þriðjudag. KFK er sæti neðar en KFS en kæmist upp fyrir með sigri. Því er mjög mikilvægt að ná sigri í þessum leik og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta á völlinn og styðja strákana í KFS. Þetta er síðasti leikur fyrir Þjóðhátíð og það er alltaf gott að starta hátíðinni með sigri.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn