Í blíðskaparveðri á Hásteinsvelli í dag, þurftu ÍBV stúlkur að sætta sig við tap í undanúrslitum Visa bikarsins. Þær fundu ofjarla sína í Stjörnustúlkum sem unnu verðskuldað og sem leika þá til úrslita við Val um bikarmeistaratitlinn. En árangur ÍBV stelpanna í bikarkeppninni hefur samt verið afar góður, að komast í undanúrslitin.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Laugardaginn 24. júlí kl. 16.09
Bikardraumurinn búinn:
Sterkar Stjörnur unnu ÍBV-stúlkur
Leikurinn var ágætlega fjörugur en Stjörnustelpur samt alltaf með takið á leiknum. Rétt fyrir leikslok varð Kolbrún Stefánsdóttir fyrir því að skalla boltann í eigið mark og þar við sat í hálfleik, 0-1. Ekki gáfust Eyjastelpur samt upp og áttu sína spretti í leiknum. En Stjarnan bætti marki við um miðjan seinni hálfleikinn, 0-2. Á 60. mínútu skoraði brasilíska stúlkan Antonia Robertha Carelse fyrir ÍBV 1-2. Hún fékk boltann í vítateignum eftir fyrirgjöf frá Sóleyju Guðmundsdóttur og skot hennar rataði rétta leið. Þá átti Erna Sigurlásdóttir eitt sinn aðeins markvörð Stjörnunnar til klást við en brást bogalistin. En yfirburðir Stjörnustelpna í seinni hálfleik voru nokkuð afgerandi og m.a. áttu þær 3 stangarskot. Sigur Garðabæjarstúlkna var sanngjarn, - og þótt hann hefði orðið stærri.
Má segja að markmaður ÍBV, Nanna Rut Jónsdóttir, hafi bjargað liðinu frá stærra tapi og var maður leiksins.








