Laugardaginn 24. júlí kl. 07.12
Visa-bikarkeppnin:

Stórleikur í dag hjá stelpunm

- Taka á móti Stjörnunni í undanúrslitum kl. 14:00

Stórleikur í dag hjá stelpunm
Í dag klukkan 14:00 leikur kvennalið ÍBV stærsta leik liðsins í áraraðir þegar liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í undanúrslitum bikarkeppninnar.  ÍBV leikur sem kunnugt er í 1. deild Íslandsmótsins en leikurinn fer fram á Hásteinsvellinum.  Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast svo úrvalsdeildarliðin Valur og Þór/KA.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig Eyjastúlkur koma til með að standa sig gegn úrvalsdeildarliðinu en Stjarnan er í 4. sæti úrvalsdeildarinnar.  ÍBV sló út annað úrvalsdeildarlið í síðustu umferð, Hauka, sem einmitt unnu Stjörnuna 1:0 í Íslandsmótinu.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn