ÍBV hafði betur gegn Val í dag á Hásteinsvellinum en lokatölur urðu 3:1. Leikurinn var afar kaflaskiptur, Valsmenn voru sterkari í fyrri hálfleik og voru verðskuldað yfir 0:1 í hálfleik. En Eyjamenn sýndu sparihliðarnar í seinni hálfleik, skoruðu tvö gullfalleg mörk, fyrst varamaðurinn Damien Justin Warlen þegar hann þrumaði boltanum inn af 25 metra færi og svo markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson sem lagði boltann glæsilega upp undir samskeytin og nýtti sér vindinn glæsilega. Tryggvi bætti svo við þriðja markinu úr vítaspyrnu og innsiglaði sigurinn.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Sunnudaginn 25. júlí kl. 18.49
Pepsídeild karla:
Sigur í kaflaskiptum leik
ÍBV vann Val 3:1 eftir að hafa verið 0:1 undir í hálfleik. - Tvö stórglæsileg mörk í dag. - Eyjamenn í efsta sætið, hvað gera Blikar?
Aðstæður voru nokkuð erfiða í Eyjum í dag en heldur bætti í vind þegar leið á leikinn og um tíma rigndi örlítið. En vindurinn var fyrst og fremst að stríða mönnum, eða hjálpa þeim. Valsmenn byrjuðu að leika undan vindinum en þeir komust yfir strax á 8. mínútu og óhætt að segja að lukkudísirnar hafi verið í rauðu í upphafi leiks. Baldur Ingimar Aðalsteinsson skaut þá að marki úr aukaspyrnu, boltinn fór í Tryggva Guðmundsson sem var í varnarveggnum og af honum í háum boga í innanverða stöngina og þaðan inn.
Valsmenn voru eins og áður sagði sterkari í fyrri hálfleik, biðu rólegir eftir að Eyjamenn sóttu upp völlinn og beittu svo stórhættulegum skyndiupphlaupum sem sköpuðu oft hættu. Baldur fékk m.a. algjört dauðafæri á 35. mínútu þegar hann var einn gegn Alberti Sævarssyni í markinu en Albert sá við honum og varði meistaralega. En staðan í hálfleik var 0:1 og Eyjamenn brúnaþungir.
Heimir Hallgrímsson sýndi hins vegar hæfileika sína sem þjálfari. Hann gerði tvær breytingar á liði sínu og hrærði aðeins í stöðum manna. Þetta skilaði sér í blússandi sóknarleik í upphafi síðari hálfleiks og eitthvað varð undan að láta. Varamaðurinn Damien Justin Warlen er nú endanlega kominn í guðatölu í Eyjum en hann skoraði nú í öðrum leik sínum í röð en mark hans í dag var hreint stórkostlegt. Warlen lét hreinlega vaða af um 25 metra færi og boltinn þandi netmöskvana. Stórkostleg tilþrif hjá S-Afríkumanninum.
Tryggvi Guðmundsson vildi hins vegar ekki vera neinn eftirbátur Warlen því aðeins þremur mínútum síðar skoraði hann ekkert síðra mark. Tryggvi, sem er hokinn af reynslu nýtti sér vindinn í botn, skaut föstu en hnitmiðuðu skoti af um 30 metra færi og upp undir samskeytin. Frábært mark hjá Tryggva.
Eftir þessi tilþrif datt leikurinn aðeins niður. Eyjamenn bökkuðu ómeðvitað aftar á völlinn enda komnir með forystuna. Valsmenn neituðu að gefast upp og náðu nokkrum ágætum sóknum en á 79. mínútu gerðist umdeilt atvik. Andri Ólafsson lék þá inn í vítateig Valsmanna, hljóp á Reyni Leósson og féll við. Dómarinn dæmdi á punktinn og spjaldaði Reyni, sem klóraði sér í hausnum. Og lái honum hver sem vill því vítaspyrnudómurinn var einfaldlega rangur og gula spjaldið engan veginn verðskuldað. En Tryggvi skorað örugglega úr vítinu og gulltryggði sigurinn. Lokatölur 3:1 og ÍBV enn á ný komið tímabundið á toppinn. Breiðablik spilar í kvöld á útivelli gegn Fram og dugir ekkert minna en sigur til að endurheimta efsta sætið.









.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

