Vinir Ketils Bónda er félagsskapur ungra manna í Vestmannaeyjum. Hópurinn hefur staðið fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum og hafa síðust ár gefið út sitt eigið þjóðhátíðarblað sem heitir því frumlega nafni Þroskahefti. Nú hafa Vinirnir stigið skrefi lengra og gefa út lag í tilefni þjóðhátíðarinnar. Lagið sjálft er reyndar gamalt og er eftir þá Axel Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson en nýjan texta samdi séra Kristján Björnsson. Lagið er komið á vefinn og má sjá hér að neðan, ásamt textanum sem ber nafnið Vitaljós.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Mánudaginn 26. júlí kl. 18.01
„Menn, konur og börn leita Vitans“
- Vinir Ketils Bónda með lag í tilefni Þjóðhátíðar og lagið heitir Vitaljós
Vitaljós
Af visku sinni lýsir Vitinn
og vísar öllum rétta leið.
Í Herjólfsdalnum ólgar hitinn
og hjörtun öll af sama meið.
Við morgunskin er ekkert myrkur
né myrkur hér um miðja nótt.
Í stóru ljósi Vitans styrkur
er styður hal og drótt.
Hér fyrir neðan húkir
hörmung með vindspöðum,
en leiðindin þau ógna Þjóðhátíð.
Menn, konur og börn leita Vitans
að birti' af gleði hans og von.
Vísi þeim Vitaljós
veg heim með friðarrós,
í burt frá sorg og sút,
frá suð í viftukút.
Í Herjólfsdal ber hátt
heiðskíra ljós í nátt:
Vitinn hár!









