Mánudaginn 26. júlí kl. 11.05
Valmundur Valmundsson bloggar:

Siglingar í Landeyjahöfn

Siglingar í Landeyjahöfn
Siglingar í Landeyjahöfn eru bannaðar öllum skipum nema Herjólfi. Þetta er ákvörðun Siglingastofnunar. Að þeirra sögn meðan reynsla er að komast á siglingar Herjólfs þangað. Mér finnst þessi ákvörðun stofnunarinnar arfavitlaus. Virðist þjóna þeim tilgangi einum að Eimskip fái ekki samkeppni um fólksflutninga til og frá Eyjum. Minnir um margt á Loftleiðir á sínum tíma. Aðstöðuleysi í Landeyjahöfn fyrir smábáta er bagalegt en úr því er hægt að bæta með litlum tilkostnaði. Til er flotbryggja sem hentar vel þar og ekki mikill tilkostnaður að koma henni fyrir.

Ef Siglingastofnun treystir sér ekki til að gera það getum við Eyjamenn gert það sjálfir. Nú eru þrjú skip í Eyjum með leyfi til farþegaflutninga. Herjólfur, Viking og ofurtuðra þeirra í Ribsafari. Viking og Ribsafari eru ofurseldir ægivaldi Siglingastofnunar sem í raun stendur starfsemi þeirra fyrir þrifum. Einungis Herjólfur má sigla í Bakkafjöru. 
 
Það getur ekki gengið til lengdar að loka einni höfn landsins fyrir umferð og er í raun alveg stórfurðulegt. Ef Siglingastofnun og Eimskip eru hræddir við að tuðrur og önnur skip flækist fyrir Herjólfi í Bakkafjöru má setja reglur um að siglingar séu bannaðar hálftíma fyrir og eftir að Herjólfur kemur og fer úr Bakkafjöru. Í annan tíma má sigla eftir nánari reglum. Ég ítreka að fyllsta öryggis verður alltaf að gæta. Þegar flotbryggjan er komin og stígur uppá plan er ekkert því til fyrirstöðu að leyfa siglingar annara skipa en Herjólfs í Landeyjahöfn.
 
Flotbryggjan er til og menn tilbúnir að koma henni fyrir og ekki trúi ég því uppá Siglingastofnun að þeir komi ekki að því að gera aðstöðuna sómasamlega úr garði. Reyndar ákalla ég sveitunga minn og samgönguráðherra að höggva nú á hnútinn og klára málið.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn