Mánudaginn 26. júlí kl. 10.51
3. deild karla:

Tólf marka leikur hjá KFS

Tólf marka leikur hjá KFS
KFS vann góðan sigur á KFK í B-riðli 3. deildar á laugardaginn.  Heil tólf mörk voru skoruð í leiknum, þar af sjö í síðari hálfleik en lokatölur urðu 8:4 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3:2.  Hreint ótrúlegar lokatölur eftir 90 mínútna leik.  Stefán Björn Hauksson skoraði þrennu fyrir KFS, Einar Kristinn Kárason tvö og þeir Sæþór Jóhannesson, Anton Rafn Jónasson og Ingólfur Einisson eitt mark hver.

KFS skaust þar með aftur upp í annað sætið, tímabundið í það minnsta því Ægir frá Þorlákshöfn spilar á morgun gegn Þrótti Vogum á útivelli.  Sigur Ægismanna þýðir að þeir ná aftur 2. sætinu, jafntefli og tap þýðir að Eyjamenn halda sætinu mikilvæga yfir þjóðhátíð.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn