Fyrr í sumar sendu Vestmannaeyjabær og Eimskip sameiginlegt tilboð til Samgönguráðuneytisins um fjölgun ferða úr 1360 á ári í 1485, sem myndi þýða fjórar ferðir alla daga ársins. Samkvæmt núverandi áætlun er aðeins gert ráð fyrir þremur ferðum mánudag til fimmtudags og á laugardögum yfir háveturinn. Kostnaður við fjölgun ferða var áætlaður rúmar 18 milljónir og höfðu Vestmannaeyjabær og Eimskip boðist til að borga rúm 2/3 hluta kostnaðarins og að ráðuneytið myndi leggja til það sem upp á vantaði. Í svarbréfi ráðuneytisins sem tekið var fyrir á bæjarráðsfundi í dag, kemur fram að ekki sé tímabært að taka afstöðu til beiðni bæjarins og Eimskips. Bæjarráð býðst nú til að borga einnig hluta Samgönguráðuneytisins.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 16.18
Samgönguráðuneyti vill ekki taka þátt í kostnaði að fjölgun ferða Herjólfs úr 3 í 4 að svo stöddu.
Bæjarstjórn ætlar að borga hlut samgönguráðuneytisins
- þrjár ferðir á dag yfir vetrartímann er ekki nóg að mati bæjaryfirvalda
Ef fram heldur sem horfir að ferðir Herjólfs verði aðeins þrjár, fimm daga vikunnar yfir tímabilið 1. október til 31. apríl, er ljóst að fyrstu farþegarnir eru ekki komnir til Vestmannaeyja fyrr en klukkan eitt á daginn. Þar með eru möguleikar til að samnýta þjónustu milli lands og Eyja, svo sem framhaldsskóla, sjúkrahúss, félagsþjónustu og fleira verulega skert. Önnur vaxtatækifæri eru einnig verulega skert, segir í bókun bæjarráðs Vestmannaeyja.
Afstaða samgönguráðuneytisins er sú að ekki sé tímabært að taka afstöðu til téðrar beiðni enda séu engar fjárveitingar á fjárlögum til þess. Ráðuneytið mun hins vegar taka málið til skoðunar þegar reynsla hefur fengist af siglingu skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
„Bæjarráð harmar þá afstöðu sem fram kemur í svarbréfi samgönguráðuneytisins. Þar til endanlegt svar fæst er ekki hægt að hefja undirbúning vetrarstarfs og skaðinn fyrir ferðaþjónustu og atvinnulífið almennt er nokkur. Bæjarráð ítrekar það sem áður hefur komið fram um að það séu ferðir Herjólfs sem eru samgöngur við Eyjar, ein og sér skilar Landeyjahöfn ekki bætum samgöngum.
Bæjarráð fagnar þó því sem fram kemur í bréfi ráðuneytisins þar sem segir: „Ráðuneytið mun hins vegar taka málið til skoðunar þegar reynsla hefur fengist af siglingum skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.“ Því felur bæjarráð bæjarstjóra að fylgjast vandlega með reynslu af siglingum í Landeyjahöfn fram að hausti og hefur þá trú að reynslan sýni að framboð ferða er grundvöllur þess að fjögur þúsund milljóna framkvæmd við hafnargerð nýtist samfélögum beggja megin við hafið. Fyrstu dagar siglinga í Landeyjahöfn sýna svo ekki verður um villst að þörfin fyrir tíðar ferðir er mikil en fyrstu 5 dagana ferðuðust 8110 farþegar með Herjólfi milli lands og Eyja.
Til að koma í veg fyrir að sóknarfærum sé fórnað með of fáum ferðum Herjólfs samþykkir bæjarráð að greiða þann kostnað sem samkomulag Vestmannaeyjabæjar og Eimskipa gerði ráð fyrir að félli á samgönguráðuneytið. Þetta er gert í þeirri fullvissu að heildar tjón samfélagsins verður margfalt ef ekki verður viðunandi ferðafjöldi yfir vetrartímann.“







.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

