Hljómsveitina Silfur þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum en sveitin hefur spilað reglulega fyrir gesti skemmtistaðarins Lundans. Sveitin hefur nú sent frá sér sinn fyrsta geisladisk en diskurinn fékk nafnið Ekkert vesen. Á honum má finna 11 íslensk lög, þar af tvö þekkt lög sem bandið tók upp á sína arma. Það er Grýlulagið Valur og jarðaberjamaukið hans, sem flestir þekkja kannski sem Hvað er að ske, og gamli Flowers slagarinn Slappaðu af.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 14.03
Hljómsveitin Silfur með nýjan geisladisk:
Ekkert vesen
Sveitin hélt forhlustunarpartý fyrir útvalda á Bar 11 nú á dögunum og þar sem diskurinn fékk rífandi dóma áheyrenda.
Hljómsveitin SILFUR var stofnuð í byrjun árs 2008 af Andra trommara og Sveini gítarleikara en þeir höfðu spilað saman í hljómsveitinni 8 Villt nokkru áður. Á bassann fundu þeir Stefán Þór sem hafði spilað með Andra í Black Out. Í byrjun árs 2009 gekk Thelma Hafþórsdóttir söngkona til liðs við bandið en hún tók þátt í þættinum um Bandið hans Bubba og varð í 3ja sæti. Thelma vakti gífurlega mikla athygli fyrir kraftmikinn söng og líflega framkomu í þættinum og hefur haldið því áfram á sviðinu með hljómsveitinni.
Meðlimir Silfur eru Andri Hrannar trommari, Sveinn Pálsson gítarleikari, Stefán Þór Stefánsson bassaleikari og Thelma Hafþórsdóttir Byrd söngkona.







.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

