Lögreglan var í síðustu viku kvödd að heimahúsi einu hér í bæ en tilkynnt hafði verið um mikinn hávaða frá íbúðinni. Þegar að var komið, kom í ljós að þar voru vinir samankomnir sem höfðu gleymt sér í þjóðhátíðarspenningnum. Spiluðu þeir á gítar og sungu sem mest þeir máttu en lofuðu að hemja sig fram að Þjóðhátíð. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.26
Gleymdu sér í þjóðhátíðarspenningnum og sungu hástöfum
Af vikunni er það helst að frétta að fimmtudaginn 22. júlí, s.l. var tilkynnt um skemmdir á rútubifreið er stóð í smábátagirðingunni við smábátahöfnina. Hafði verið farið inn í rútuna og skemmdir unnar á innréttingu hennar. Að svo stöddu er ekki vitað hver var þarna að verki og eru þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um verknaðinn beðnir að hafa samband við lögreglu.
Þá var tilkynnt um rúðubrot í gullbúðinni við Vestmannabraut. Vitað er hver var þar að verki og telst málið upplýst. Þá var tilkynnt um að útidyrahurð á Hvítasunnukirkjunni hefði verið spennt upp. Var farið um allt húsið en engar skemmdir að sjá né að einhverja hluti vantaði. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu.
Tilkynnt var um einn þjófnað á tímabilinu. Var myndavélalinsu stolið frá ferðamanni er var staddur á veitingastaðnum Lundanum. Með aðstoð starfsmanna Lundans tókst að hafa upp á linsunni og þeim er tók hana.
Þurfti lögregla að banka uppá í einu heimahúsi þar sem tilkynnt hafði verið um mikinn hávaða frá íbúðinni. Þar voru vinir samankomnir sem höfðu gleymt sér í Þjóðhátíðarspenningnum. Spiluð þeir á gítar og sungu sem mest þeir máttu en þeir lofuðu að hemja sig fram að Þjóðhátíð.
S.l. sunnudag var lögregla kölluð að MotoCross brautinni þar sem einn vélhjólakappi hafði fallið að torfærubifhjólinu og slasað sig. Var hann fluttur á heilbrigðisstofnunina til skoðunar. Ekki er vitað hveru alvarleg meiðsli hans eru en hann var mjög vel brynjaður. Þá var tilkynnt um eitt umferðaróhapp á Hamarsvegi, við afleggjarann að Týsheimilnu. Varð mikið tjón á ökutækjunum en engin slys á fólki. Eru þeir sem urðu vitni að árekstrinum beðnir að gefa sig fram við lögreglu.
Lögreglumenn á eftirliti veittu athygli bifreið var með röng skráningarnúmer áföst. Kom í ljós að skráningarnúmerin af annari bifreið höfðu verið sett á bifreiðina Þá var bifreiðin ótryggð og hafði ekki verið færð til skoðunar í mjög langan tíma. Voru skráningarnúmerni tekin af bifreiðinni og verður eigandi hennar kærður fyrir þetta.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að hafa bílbeltin ekki spennt við aksturinn. Þá var einn ökumaður kærður fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða en hann mældist á 71 km/klst. þar sem hámarkshraði er 50 km/klst.
Þá var enn einn ökumaðurinn stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var tekið úr honum blóðsýni til rannsóknar.








